|
|
13.04.2007 10:27:30 / birta
....HÆTT...!!
»
07.04.2007 16:55:22 / birta
Jú jú mikið rétt, páskarnir góðu gengnir í garð með tilheyrandi
súkkulaðiáti, sumarbústaðaferðum og slökun....þ.e. hjá vinnandi
fólkinu, ekki okkur háskólanemum...ÓNEI mín kæra, það eru bækurnar,
glósurnar og dómarnir sem bíða mín! Hahaha Rosa dugleg í morgun,
vaknaði frekar snemma og byrjaði að lesa... Tók mér pásu áðan og
fór í Bónus að versla... Rak Homero út með hundinn, voru báðir full
eirðarlausir fyrir minn smekk.. Ætla að borða lakkríspáskaeggið
mitt á morgun, dáldið spennt að sj´ahvernig það bragðast, hef
miklar væntingar til þess... Annars er það bara þetta same old sem
á dagana drífur, nema að ég fór í gær að skoða tilvonandi nýjasta
fjölskyldumeðliminn...freeeekar mikið sæt! Get samt ekki fyrir mitt
litla líf fundið nafn á hana sem ég er 100% sátt við, fullt af
hugmyndum í gangi en það að taka ákvörðun er eitthvað að vefjast
fyrir mér... Afhending á krílunum er um miðjan maí, þá er maður
auðvitað löööngu búin í prófum og er “bara” að vinna....en þá tekur
samt við heljarins vinna því að það er miklu meira mál að vera með
svona lítinn hvolp en fólk heldur úff....en það verður bara gaman!
Spurning hvernig hann Funi spuni tæklar litla brjálæðinginn, það
verður líka spennandi að sjá, enda búinn að vera “einkabarn” í tvö
ár og svona hehehe. Tók nú alveg nokkrar myndir af krúttunum en þar
sem ég er eitthvað illa skert hvað það varðar að setja myndirnar
mínar hér inn, þá verður það bara að bíða betri tíma! Og hvað er
málið með þetta "stjórnborð" innni á síðunni, það er ekki lengur
hægt að velja leturstærð og fleira til að breyta textanum, bara
horfið út! arrg Fer að hætta þessu blogg veseni bráðum, komin í
pirrað skap...arrg Birta
»
10.03.2007 18:47:08 / birta
Að elda og baka eða bara búa til
eitthvað ætilegt er án alls efa það allraleiðinlegasta sem ég geri.
Kemst bara ekki yfir það hvað það er leiðinlegt, þegar ég elda hér
á heimilinu er það eingöngu af því að ég er gjörsamlega tilneydd.
Skil ekki fyrir nokkurn mun það að hafa gaman að því! Ef ég verð
einhverntímann úbermilljóner þá væri það mitt fyrsta verk að ráða
kokk! Án gríns, ekki manneskju til að þrífa, nei KOKK!
Þetta er hin mesti hausverkur hér á heimilinu, every night! Ohhhh,
þetta er svo leiðinlegt að ég nenni ekki að pæla í því fyrr en
svona um sjöleytið þegar maður á að vera AÐ borða en ekki að ákveða
hvað á að vera í matinn og eiga eftir að elda hann! Hate it! Finnst
það samt voða leiðinlegt að finnast þetta svona leiðinlegt en svona
er þetta víst, líklega spilar það inn í að ég bara kann ekki að
elda fyrir fimmauara, þannig að það hefur sjálfsagt sín áhrif.... Á
sama tíma og ég skil ekki fólk sem hefur gaman af eldamennsku þá
öfunda ég það líka, þetta er eitthvað sem er mjööög praktískt
áhugamál! Hahaha vildi að einungis lítil hluti af mínu áhugasviði
lægi þarna en neiiiii....svo er ekki.
Mamma er alger snilldarkokkur og ég trúi ekki öðru en að henni
finnist eins og uppeldið hafi mistekist að einhverju leyti
hahahaha, hún er bara snilldarhúsmóðir! Kann að elda og baka allt,
sauma og græja allan pakkann! Hehe Svo er brósi menntaður kokkur
þannig að áhuginn er í familiunni en náði bara ekki til mín.
En þó svo að ég beinlínis hati þetta þá neyðist ég nú stundum til
þess, bæði að elda og einstaka sinnum að baka og þá þarf ég að fá
NÁKVÆMA uppskrift og fá að vita AKKURAT hvernig á að gera hlutina
og í hvaða röð! Án gríns ég hef ekkert sem heitir hvatvísi eða
frumleiki í eldamennsku....það þýðir ekkert að segja við mig:
“settu bara smá af þessu og svo rúmlega/tæplega af þessu þangað til
að þetta er orðið sirka svona og hinsegin” ÓNEI ég þarf að hafa
hlutina akkurat svona en ekki svona! hahaha
Svona er maður speeees á sinn hátt....

jæja ég er farin að baka....hehehe
Birta
»
28.02.2007 20:31:38 / birta
...eru svoooo spes stundum, hér fyrir neðan er
samtalsbútur sem lýsir mínum yndislega sambýlismanni
ágætlega...
Birta: Homero, er þátturinn á skjáeinum
byrjaður..??
Homero: NEI
Birta: Veistu hvaða þátt ég er að tala um...?
Homero: NEI
Hahaha
Birta
»
20.02.2007 00:26:21 / birta
Játs, Madonna vinkona mín ætlar að vera með
tónleikana Confessions on the dancefloor á Skjáeinum,
föstudaginn 24. Feb, ohhh get barasta ekki beðið!! Samt búin að
panta mér þessa tónleika á DVD á Amazon og alles...hehe
Mér er alveg sama hvort að þið eruð fans eða ekki, þetta er svooo
þess virði að sjá, tala nú ekki um að vera þar, það var MEGA! Svona
neverforget moment...!!

Svo er að fara fjölga í fjölskyldunni, já já á meðan vinkonur mínar
eignast börn hægri, vinstri og í sumum tilfellum, barn nr TVÖ! þá
er ég að fara fá mér hund nr TVÖ! Hehehe Það er nefnilega
gullfalleg tík af tegundinni Weimaraner hvolpafull og ég er búin að
panta eitt stykki hvolp sem á að líta dagsins ljós þann 10
mars.....bíð mjöööög spennt!

Æi ég hef ekki rass að segja, sambýlismaðurinn minn er að tapa sér
í framtakssemi hér á heimilinu, fyrst var hann með pensil í
hendinni allur hvítur á höndunum og svo þegar ég kíkti núna áðan á
hann þá var hann hálfur inni í skápnum undir eldhúsvaskinum, og þar
áður var hann búinn að skrúfa kranann af vaskinum á baðinu að spá í
að skipta um krana, þannig að það er allt að gerast hérna á
heimilinu! Hah....svo hljómar þetta líka mjög mikið eins og ég hafi
ekki verið að gera djakksjitt!! Hahaha
Birtan
»
10.02.2007 16:05:01 / birta
...er eitthvað sem fólk almennt hefur enga samúð með! Kræst Er
einmitt núna að farast úr harðsperrum og hef þónokkuð oft verið að
láta lífið úr þynnku, þannig að ég þekki viðbrögð fólks við
hvorutveggja!
Ég hef verið það þunn og verð yfirleitt, þannig
að ég ligg uppi í rúmi og rúlla fram á baðherbergi yfir daginn, í
þeim eina tilgangi að æla úr mér lifur og lungum! Skríð svo upp í
aftur og reyni að sofna með ógleðina og hausverkinn á fullu, gengur
yfirleitt ekki mjög vel...
Og á meðan þessum ósköpum stendur segir fólk í mesta lagi: “þú
kallaðir þetta yfir þig sjálf” eða “já, þér var nær”!!!! pabbi gekk
svo langt að þegar ég staulaðist fram úr rúminu yfirleitt um
kvöldmatarleytið, þá lék hann æluhljóð í smátíma við mikinn fögnuð
annarra fjölskyldumeðlima sem hlógu dátt að óförum mínum.
Akkurat núna get ég varla gengið, staðið upp, sest niður eða gert
nokkurn skapaðan hlut fyrir ólýsanlegum harðsperrum í lærunum og
rassinum. En það finnst fólki ofsalega fyndið, þegar það sér mig
vagga um eins og mörgæs með tilheyrandi grettum og stunum,
styðjandi mig við veggi og allt tiltækt eins og gömul kona. En
þetta eru því miður einir af verstu verkjum sem ég
persónulega hef upplifað og fara mest í skapið á mér, maður er að
reyna vera heilsusamleg fer að lyfta lóðum og gera alls kyns
kjaftæð og uppsker svona í staðinn....ekki sanngjarnt. Það hefur
aldrei verið jafn erfitt að setja í og taka úr þvottavélinni eins
og akkurat núna, dísus, nógu erfitt er að beygja sig niður hvað þá
labba með fangið fullt af þvotti niður stigann í þvottahúsinu
mínu...úfff einhver hefði hlegið að mér áðan...hehehe labbaði á
hlið með eina löppina í einu niður tröppurnar...!
Segi þetta gott í bili......Birta
»
09.02.2007 09:45:23 / birta
• 0700 Ræktin: brennsla dauðans með Möggunni
• 0900 Skóli: blessaði félagarétturinn
• 1200 Vinna: hreinsa bómul, blanda silver, vei
vei
• 1400 Út með hvutta: þarf að hreyfa litla
dýrið!
• 1600 Vinna: þjóna eitthvað frameftir....
vibbi......langar að sofa ALLA helgina ekki læraaaaa......!!
»
01.02.2007 18:28:40 / birta
Sit sveitt
að vinna í allraleiðinlegasta verkefni sem samið hefur verið!
Ef einhver efast um það, þá er það bara minnsta málið að meila
viðbjóðnum áfram til að sanna mitt mál...
Margt og mikið á daga mína drifið að undanförnu, þrítugsafmæli sem
var nú fljótt að breytast í brúðkaupsveislu! Alger snilld, djamm
niðri í bæ þar á eftir.....þynnka svo þar á eftir...hehe
Dagarnir núna einkennast af því að (reyna/drullast) að mæta í
ræktina, þaðan í skólann og þaðan svo í vinnu, eftir hana er svo
skundað út með Funaling og svo heim að elda og læra....sumsé nóg að
gera!
Hann Homero minn er svo obboslega duglegur þessa dagana að það
hálfa væri nóg, kallinn er nebblega á milljón í því að gera og
græja það sem búið er að pirra okkur ofsa lengi í íbúðinni okkar,
setja parketlista, sturtuhengi og svoleiðis! Eitthvað í bígerð að
fara selja og kaupa aðra íbúð....sjáum hvað setur með það, ekkert
ákveðið enn allavega.
Fékk alveg rosalega skemmtilegan póst í gær frá henni Madonnu
vinkonu minni....eða klúbbnum hennar, nebblega rosalega skemmtileg
tilkynning um það að tónleikatúrinn hennar sem ég fór einmitt á, er
hvorki meira né minna en kominn út á DVD! Og það er sko eitthvað
sem að gleður mitt litla hjarta! Hehe, bara búin að bíða síðan í
ágúst eftir þessu! Nú er bara að skunda inn á Amazon og panta eins
og eitt stykki!
Annars er það efst á baugi að hún Ása mín var að eignast lítinn og
yndislegan prins í nótt, hvorki meira né minna en 14 merkur og 52
cm, klukkan hálftvö, þannig að litli kall fær þessa flottu
kennitölu: 01.02.07
Bið bara að heilsa ykkur í bili!
Birta out!
»
13.01.2007 21:09:52 / birta
Já, svo mikið hata ég nágranna mína að ég sit
við tölvuna með spánýju yndislega falllegu og megagóðu hátalarana
mína og blasta bara hana vinkonu mína Nelly Furtado, alger snilld,
nýju lögin hennar! Og hananú!........það er nú einu sinni
laugaragskvöld! (rosa uppreisn)
Geri mér svosem alveg grein fyrir því að þetta er ekki fyrsta “ég
hata nágranna mína svoooo” færslan en samt, þegar maður finnur
alltaf nýtt til að kvarta yfir why not go for it!?? Hahaha
Ég þarf nebblega að þola helv...djöfuls ónæði frá þessu liði að ég
má alveg spila tónlist hjá mér aaaaðeins yfir hávaðamörkum hjá
normal fólki, þó það sé ekki nema einu sinni í mánuði....heh
Þarf að hlusta á unglinginn með sína skítugu unglingavini, skella
hurðum, banka á þær þangað til að ég bíð eftir að þær detti af
hjörunum, spila tónlist og fleira. Húsmóðirinn er með einhvern
alversta hósta sem heldur alveg án efa fyrir henni vöku, því hann
gerir það fyrir mér! Svo ég tali nú ekki um litla krakkann sem
grenjar OF mikið fyrir minn smekk.....það heyrist semsagt ALLT
niður til mín! Svo ég minnist ekki á ALLA sígarettustubbana eftir
þau sem prýða alla stéttina fyrir framan hjá húsið og er í haugum
fyrir utan útidyrahurðina MÍNA!
Nóg komið af grönnum, þó að það sé nú nafn á þætti sem ég er ekki
búin að eyða ófáum stundunum að horfa á og ræða um við systu...hehe
Og einmitt í upphafslaginu þá segir: “Grannar, allir eiga góða
grannaaaaaa!” djöf kjaftæði...!! Ekki mín reynsla, hér á
klakanum að minnsta kosti, spurning um að skella sér til Australia
og athuga hvernig þeir eru þar.....hah
Laugardagskvöld og ég ætlaði mér nú alveg örugglega að gera
eitthvað skemmtilegra en að baktala fólkið á efri
hæðinni......hmmmmm...
Set mér aldrei nýársheit en mottó ársins 2007 er SKIPULAG from A to
B........skóli plús vinna plús Homero plús Funalingur plús ríða
út..? (hestunum þ.e) plús vinir og ég veit ekki hvað og hvað! Ef
maður ætlar nebblega að vera þessi
ofurvinkona/kærasta/dóttir/systir/hundeigandi/nemi og starfsmaður
sem ég stefni auðvitað á hahaha þá held ég að skipulag sé the way
to go....sjáum svo til hvað situr á hakanum ef það verður þá
eitthvað.....hehe
Finnst alltaf svo mest töff svona rosalega flottar bloggfærslur hjá
sniðuga fólkinu sem enda á einhverju mottói og lagi dagsins, en þar
sem ég hef engin verulega töff mottó og er með hörmulega spes
(lélegan) tónlistarsmekk þá er ég ekkert að opinbera það sem væru
lög dagsins hjá mér.....haha
Later Birts
»
01.01.2007 22:16:56 / birta
Já jólin
barasta búin og nýtt ár gengið í garð.
Óska
“öllum” eða bara þeim sem nenna að lesa þetta gleðilegs nýs árs,
með þökk fyrir það gamla.
Jólin voru eins
og alltaf mjög fín, fékk geggjaðan mat og fullt af frábærum gjöfum,
ekkert nema gott um það að segja....nema það að ræktin, here I
come!! Hehe
Búin
að vera í jólafríi frá því rétt fyrir jól en alvaran tekur svo
aftur við á miðvikudaginn.
Var
í svaka rólegheitum í þessu fríi mínu, slakaði á hér heima og hjá
familiunni og skaust svo nokkrum sinnum í sveitina sem er bara
nauðsynlegt og laaangbest.
Fór
þar á meðal í sveitina á gamlársdag með litla “barnið” í
rólegheitin af því að hann er vægast sagt MEGA hræddur við
sprengjurnar, og þar sem við vorum í mat hjá gamla settinu gat ég
ekki fyrir mitt litla líf skilið hann eftir einan heima. Hann var
samt svona frekar rólegur dagana fyrir gamlárs* en var þá bara
svona aðeins á röltinu um íbúðina og tróð sér á staði þar sem hann
vanalega liggur aldrei á. Fór meðal annars inn í svefnherbergi sem
hann kemur vanalega ekki inn í og tróð sér undir skrifborðið á
milli þvottakörfunnar og snúruflækju....litla krúttið!! Við vorum
eins og fyrr segir hjá mömmu og pabba í svakalega góðum mat eða
öllu heldur veislu og horfðum svo á fólk sprengja gamla árið í
burtu uppi á hólnum góða sem er bak við hús hjá mömmu og
pabba.
Fórum svo í dag
að ná í litla stubbinn í sveitina þar sem honum líður altaf svo
vel, var búin að búa um hann í rýminu á milli hússins og
hesthússins, tók búrið hans og það sem inni í því er, púðinn hans
og svona, matardallana hans, fyllti af mat og vatni og svo var ég
búin að fá rosaflott bein handa honum eða öllu heldur mamma........
Ég fór nebblega í ónefnda kjötverslun og ætlað að fá nautabein
handa honum. Ég var sú eina sem var ekki að kaupa rándýrar
nautalundir eða voðalega flott “bláberjalambalæri”...hehe jæja
röðin kemur að mér og ég halla mér upp að glerinu og segi frekar
lágt: “ég var að spá í að fá bein handa hundinum mínu....” hann
alveg: “já ekkert mál, ég á að vísu ekki legg en ég á kúluna eða
liðina sem þeim finnst svaka gott að naga” ég bara “ok flott mál,
þetta er fyrir tvo hunda” (má ekki skilja hundinn í sveitinni
útundan hehe) Ok, hann vippar sér bakvið og fyllir svona venjulegan
plastpoka af beinum, smellir svo pokanum á vigtina og límir límmiða
á hann. Ég reyndi að rýna í miðann þegar hann var að líma hann á og
sýndist ég sjá að verðið væri rúmlega 200 krónur. Svo tek ég við
pokanum og set hann á borðið hjá kassanum og sé á betur á
helv...miðann, heyrðu gaurinn ætlaði að rukka mig rúmlega fokkings
2500 kr fyrir BEIN! Ekki KJÖT nei BEIN!! Arrrg ég stóð eins og
mesta fífl í heimi á meðan stelpan var að rukka konuna fyrir framan
mig og starði á miðann......hver djöf...er í gangi er maðurinn að
fokka í mér eða...?? svo kom röðin að mér og ég starði enn á
miðann, svo sagði ég við stepuna áður en hún stimplaði þetta inn:
“heyrðu ég gleymdi veskinu úti í bíl” ......hringdi í Homero og
spurði hann hvort að þetta teldist eðlilegt eða hvað....!
hahaha Skokkaði svo bara aftur inn og sagði við stelpuna að
ég ætlaði ekki að fá BEIN fyrir 2500 og fór. Djöfuls
kjaftæði...
Svo
fór hún elsku mamma mín og blikkaði strákinn í kjötborðinu í
Nóatúni og fékk bein fyrir “barnabarnið” FRÍTT, á hennar miða stóð
ekki rúmlega 2500 kr NEHEI það stóð “gleðileg jól”
handskrifað!!!!
Mamma er líka
flottust....hehehe
Take
care.......Birts
»
23.11.2006 01:19:30 / birta
Sjetturinn segi ég nú bara, það kemur “smá” snjór á klakann og allt
í rugl. Maður skellti sé nú bara út á djammið, laugardaginn síðasta
að því tilefni að Sálin sjálf var að spila í Mosó, ekki hægt að
láta sig vanta á það!! Játs til að gera langa sögu stutta þá var
HLAUPIÐ út af ballinu til að ná leigubíl eftir að ljósin voru
kveikt og Stebbi hættur að syngja......með þeim afleiðingum að ég
flaug svona líka fallega með andlitið á kaf í snjó, sem byrjaði að
kyngja niður fyrr um kvöldið og hætti ekkert fyrr en daginn eftir!!
Allavega þá var ferðinni heitið í miðbæ Reykjavíkur og tókum við
vinkonurnar nokkra snúninga á skemmtistöðum bæjarins. Þegar klukkan
var að verða sex um morguninn þá fannst mér vera kominn tími til að
fara heim, þannig að ég hringdi í elsku manninn minn og viti menn,
hann reif sig á fætur fór út að moka bílinn úr bílastæðinu og kom
að ná í mig. Polo-kagginn, var á sléttum sumardekkjum þannig að
hann komst ekki langt en sem betur fer var hann á vinnubíl sem
truntaðist á niður í bæ. Við komumst þó ekki alla leið heim og
þurftum að leggja kagganum hjá Apótekinu á Sogavegi og labba heim
klukkan hálfsjö um morguninn í snjókomu á HÆLUM!! Arrg þá var nú
eitthvað blótað! Hahaha
Daginn eftir skellti ég mér í
skíðagallann og skundaði út í garð með Funaling sem hoppaði eins og
hamingjusöm kanína í garðinum á kaf í snjó. Ég tók mig til og
mokaði snjóinn frá útidyrahurðinni og gerði stéttina fyrir utan
fína og snjólausa. En þar sem vinnubíllinn var fastur á
Sogaveginum og frúarbíllinn í stæðinu tók kallinn sig til og
byrjaði að reyna moka hann út.......og þá hefst
ævintýrið....hehemmm!
Manzi byrjaði að moka frúarbílinn út úr stæðinu en hann komst ekki
langt......svo að Hlín kom brunandi á jeppabifreið sinni og lánaði
Homero hann til að keyra að vinnubílnum til að draga hann út. OK
þeir keyra þangað vinirnir og setja vinnubílinn í gang, loka
hurðinni á honum og byrja að moka.....þá vill ekki betur til en svo
að takkinn í hurðinni var ekki kominn nógu langt upp þannig að hann
var læstur.....og í gangi!! OK vinnubíllinn í gangi og læstur í
þokkabót! .....ekki til neinir aukalyklar og lyklarnir á Poloinum
voru líka á sömu kippu!! Homero kemur aftur heim til að ná í
einhver verkfæri til að reyna “brjótast” inn í bílinn og á meðan
hann er að týna þau til, byrjar jeppinn hennar Hlínar að láta
eitthvað skringilega og drepur bara á sér.....OK hlutirnir ekki
aaaaalveg að ganga upp. Það kemur í ljós að hann er mjög líklega
bensínlaus og þá var ekkert annað í stöðunni en að LABBA út á
bensínstöð! Hann Homero minn er vægast sagt seinheppinn, fljótfær
og vel óþolinmóður. Hann semsagt arkar út á ESSO og biður um BRÚSA,
það skal tekið fram að hann talar frekar hratt og er ekkert alltaf
að vanda sig við að tala neitt OF skýrt. OK bæði stelpan og
maðurinn á bensínstöðinni hrista bæði hausinn og benda honum á að
fara á aðra Essostöð í nágrenninu, Homero verður frekar pirraður af
því að rétt áður sá hann brúsa fyrir utan og bendir þeim á að hann
sé fótgangandi í þokkabót. Þau yppa bara öxlum og segja “því miður”
Homero horfir á þau með þvílíkum undrunarsvip og skilur ekki þessi
svör frá þeim, snýr sér svo við og er á leiðinni út þegar stelpan
segir: “við erum bara með langlokur og samlokur í kælinum” Homero
snýr sér við og hélt að nú væri bara verið að gera feitt grín í sér
en þá segir stelpan: “við erum ekki með neinar PULSUR hér”
hahahahhaahaha, SMÁ misskilningur á ferðinni!!!
Manzi kallinn fékk brúsa, kom með bensín heim, skellti því á
bílinn, fór og opnaði vinnubílinn þannig að sagan endaði vel!
;o)
Adios Birta!!
»
29.10.2006 12:20:14 / birta
Jám, fyrir akkurat viku síðan vorum við Funi stödd uppi í
Mosfellsdal á hundanámskeiði, nánar tiltekið Framhaldsnámskeiði I.
Ógisslega gaman, 10 laugardaga í röð mættum við klukkan 11 og vorum
til 13 á daginn. Í lok námskeiðisins var auðvitað heljarinnar próf
þar sem við áttum að gera allar þær æfingar sem við höfðum verið að
læra undanfarið. Ég var álíka stressuð og fyrir próf skólanum, án
gríns. Við systurnar vorum búnar að mæta í hvern einn og einasta
tíma og æfa okkur samviskulega heima á milli þeirra. Það er óhætt
að segja að við stefndum á efstu sætin, búnar að grandskoða
“andstæðingana” og ræða galla þeirra og kosti mjööög vel! Hehehe
ekki hægt að segja annað en að við höfum tekið þetta alvarlega.
Prófið gekk mjög vel hjá okkur og hlutir sem við vorum hvað mest
stressaðar fyrir gengu bara rosavel þannig að við vorum bara
sáttar. Enda vorum við og fleiri reyndar búnar að koma uppeftir tvö
kvöld í vikunni áður og æfa alla brautina. Eftir að prófið var búið
var boðið upp á kakó og prins á á meðan prófdómararnir fóru yfir
niðurstöðurnar. Einkunn upp á átta og yfir þýðir 1. Einkunn, hana
hlutu allir. Brons fyrir 3 og 4, silfur fyrir annað og GULL fyrir
fyrsta. Ég og Funi hrepptum hvorki meira né minna en fyrsta sætið
með 9,9 í einkunn!!! Bara sátt! Þegar Ásta kennarinn var búin að
tilkynna öll sætin nema það fyrsta sagði hún: “og eins og allir
vita þá fengu Funi og mamma hans flest stigin”!!!! mega stolt
mamma!! Hehe það fyndna við þetta er líka það að Funi er eini litli
hundurinn í hópnum þetta voru allt hundar af tegundunum Labrador,
Schafer, Rottweiler og Irish Setter.
Hópurinn á námskeiðinu var alger snilld, æðislegt fólk sem stefnir
flest allt á Framhaldsnámskeið II, Homero fannst það nú alger
óþarfi þar sem Funi er gullverðlaunahafi frá báðum námskeiðunum og
spurði hvort að Funa yrði þá á næsta námskeiði kennt að tala!
Haha
Á eftir að setja inn nokkrar myndir sem voru teknar í einunm
tímanum, læt vita þegar þær eru komnar inn.
Þangað til næst Kveðja Birta og Funi ;o)
»
17.10.2006 11:37:49 / birta
Já málið er sko að ég er í prófum, þannig að blogg er eitthvað sem
situr allsvakalega á hakanum....
Fer í ógeðisbókhaldspróf á morgun og má segja að það sé aðalástæðan
fyrir því að ég ákvað að blogga núna, allt annað en að læra fyrir
það..hehe
Dagurinn í gær var ekki alveg minn besti, kom í skólann um átta og
var í tíma til tíu þá komu frímó, var búin að vera að drepast úr
kulda allan morguninn þannig að ég ákvað að hlaupa fram og kaupa
mér heitt kakó, þar sem það er mér lífsins ómögulegt að drekka
kaffiskít......ok ég byrja á því að fara í hraðbankann, tók þar út
eitt stykki 500 kall og fer í vélina sem seint verður kölluð
vinkona mín og á að skipta seðlum í klink, Á að gera það! Nema hvað
að hún gerir það nánast aldrei, skiptir kannski svona einum af
hverju 10 seðlum! Arrg ok þá þarf ég að fara í sjoppuna og biðja
þær að skipt fyrir mig, ónei þá eru bara svona 60 manns fyrir
framan mig! Vegna mjöög mikils kulda ákvað ég að láta mig hafa það
og stóð í röðinni, afgreiðslustelpan skipti peningnum og ég var
ansi sátt......þar til ég kom að kaffi/kakó vélinni, þá er málið
það að hún er BILUÐ! Frímó búnar og ekkert kakó! ARRRG ekki
sátt!
Annars er allt ágætt að frétta maðurinn kominn heim og get ég ekki
verið neitt nema sátt við það, enda var söknuðurinn kominn á
hættustig...hehe
Jæja ætla að læra eitthvað fyrir þetta prófógeð!
Kveðja Birta
»
20.09.2006 23:37:48 / birta
Engir stómerkilegir hlutir
hafa svosem á daga mína drifið undanfarna daga......skellti
mér norður til Akureyrar með Brjáni bróður, lögðum af stað frá
RVK klukkan hálfníu um morguninn og vorum komin aftur tilbaka
akkurat 12 tímum síðar! Geri aðrir betur hehe. Það var sem
betur fer ekki mikil umferð þannig að það gekk svona ljómandi
vel hjá brósa að þeytast þetta á vægast sagt mikilli
ferð....vorum með Ipodinn hans í spilun og ég var að verða
geðveik á tónlistinni, nema hvað hann segir mér að endilega
velja mér þá tónlist sem ég vil hlusta á, geri það, en nei þá
er allt! sem ég vel vonlaust, þannig að við hlustuðum á hans
tónlist mest alla leiðina og á meðan reyndi ég að dreifa
huganum með því að læra landafræði.....”já fer maður hingað ef
maður ætlar að Hvammstanga” hehe, hef aldrei komið þangað, by
the way...... Allavega ástæðan með förinni norður var að
heilsa upp á ömmu og afa sem maður hittir nú ekki oft og ég
get varla lýst því hvað þau voru ánægð að fá okkur í heimsókn
og ekki minnkaði ánægjan þegar við sögðum þeim að við hefðum
bara komið norður til að hitta þau....og fá smá Brynju
ís..hehe. kíkti svo örstutt á Hölluna og Stebba boy sem búa á
fínum stað í voða sætri íbúð.
Semsagt eftir að brósi fór (búin að vera á sófanum hjá mér í tvær
vikur) af stað í heimsreisuna sína nr 3 eða eitthvað álíka, þá erum
við Funi búin að vera ein í kotinu...ágætt í smástund, en er nú
farið að vera virkilega leiðinlegt....!! Get gjörsamlega ekki beðið
eftir að fá Homero aftur heim og þar sem hann er kominn með heimþrá
á háu stigi er þetta hreint ekkert auðvelt!!
Mest löt í skólanum skil ekki af hverju, þarf að fara sparka í
rassgatið á sjálfum mér, guð veit að það er nógu stórt til að hitta
á það! Haha
Er búin að komast að því að ég er ekkert svona þrifin eins og ég er
búin að telja mér sjálfri trú um, er ekkert búin að vera að ryksuga
eða skúra neitt allt of oft síðan Homero fór, eins fallegt að vera
ekki að fá mikið af gestum...úfff Þreif samt bílinn alveg hátt og
lágt, svoleiðis baðaði hann í sápu skolaði það af, þreif felgurnar
í spað, ryksugaði og þurrkaði af öllu að inna, svo það er nú
helv....gott.
PS svo er ég sérlega ánægð með að skinkan mín hún Ása er farin að
lesa bloggið mitt, endilega kommentaðu mín kæra geit! Love you
;o)
Hef það ekki lengra í bili.......Birtus
»
09.09.2006 19:10:16 / birta
Úffff..!! Erfiður
morgun í morgun, skutlaði Homero á flugvöllinn um hálffimm.
Keyrðum í mega rigningu og roki eins og það gerist verst á
Íslandinu. Þegar við komum þangað vildi ég ólm fara með honum
inn og bíða eftir að hann tékkaði sig inn, nýta hverja
mínútu!! Hehe Svo var kominn tími til að segja bless og ég
ætla engan veginn að halda því fram að það hafi verið eitthvað
auðvelt! Kræst ég veit ekki hvað fólkið á flugvellinum hefur
haldið um mig þegar ég hékk í fanginu á Homero hágrenjandi!
Díses Reyndi, tek það fram reyndi að vera hörð en það gekk
ekki aaalveg í dag. Vildi samt ekki tefja manngreyið of lengi,
þannig að ég þurrkaði tárin og labbaði út. Svo á leiðinni heim
var ég að reyna halda aftur af mér, kveikti á útvarpinu til að
dreifa aðeins huganum, en viti menn er Létt 96,7 ekki að spila
lagið með Magna: “hvert sem ég fer, hvert sem þú leiðir mig,
þar vil ég vera, þar vil ég vera hjá þééééééér” Ekki beint til
að hjálpa manni að hætta gráta hehe og það er ekki best að
vera keyra með augun full af tárum, búin að komast að því að
maður sér ekki mikið út.
Cry baby Birta...........
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|